r/Iceland 4d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

1 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 4h ago

Er ekki kolólöglegt að hafa ekki einn, heldur tvo síma fyrir framan sig að lesa twitch chat meðan þú keyrir hringinn á móturhjóli? Hvaða leiðsögufyrirtæki er að leyfa þeim þetta?

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

39 Upvotes

r/Iceland 36m ago

Þessi maður var andlit Áfram Ísland

Post image
Upvotes

Ólafur Ragnar hefur svosem aldrei farið leynt með hvar hann stendur, en þessi póstur er aðeins of !


r/Iceland 10h ago

Að vinna rök­ræður án rök­semda, Þekkir þú Gish gallop tæknina?

Thumbnail
visir.is
69 Upvotes

Ég rak augun í þessa grein í gærkvöldi. Alveg mjög áhugaverð grein og eitthvað sem ég hafði aldrei pælt í sjálfur áður. Ég sé ekki betur en að þetta sé tækni sem Sigmundur Davíð, Trump, Snorri Másson, Guðlaugur Þór, Þórarinn Hjartarson og fleiri nota markvisst. Ég fór að horfa á nokkur YouTube myndbönd um hvernig þessi tækni virkar, mæli með! Rakst svo á fleiri aðferðir sem tilheyra sömu regnhlífarhugtökunum, flood the zone with shit og firehose of falsehood sem eru meira notaðar á samfélagsmiðlum og netheimum. En ef ég skil þetta rétt er Gish gallop notað í rökræðum, kappræðum, hlaðvörðum og viðtölum. osfv

Tilvitnun úr greininni:
Annað dæmi, tökum bara klassískt dæmi um hvernig þetta birtist í kappræðum stjórnmálamanna í sjónvarpinu. Segjum að umræðuefnið séu umhverfismál og orkuskipti.
Spyrillinn gefur hvorum viðmælanda um sig 60 sekúndur til að svara(þetta eru uppskáldaðir karakterar).

Kári, rökræðumaður sem vill ræða málin á yfirvegaðan hátt. Gunnar er rökræðumaður sem beitir Gish gallop tækninni.

Spyrillinn spyr. “Gunnar, af hverju ert þú á móti nýju orkustefnunni?“

Gunnar (Gish gallop tækninni beitt af fullum krafti , 60 sekúndur),

“Heyrðu, það er alveg augljóst! Fyrst og fremst kosta þessar rafhlöður meira en allt fjárlagagatið, allir vita að rafbílar brenna fjórum sinnum hraðar upp og slökkviliðið getur ekki slökkt í þeim, vindmyllurnar eru að drepa allan fuglastofninn á vestfjörðum, og svo voru þessar sömu hugmyndir prófaðar í Þýskalandi 2017 og framleiðslan hrapaði um 40%! Auk þess eru þetta allt saman tilskipanir frá Evrópusambandinu sem við skrifuðum undir ólöglega árið 2019, vísindamenn í Svíþjóð voru að sýna fram á að stálframleiðslan geti aldrei orðið græn, og á meðan er Kína að byggja tvö kolaverk á viku!

Hvað gerðist rétt í þessu? það sem gerðist er að Gunnar henti út svona sirka 7 ólíkum fullyrðingum, sumum hálfsannleik, sumum rangfærslum og sumum óviðkomandi staðreyndum, á aðeins 45 sekúndum.

Næst fær Kári orðið, 60 sekúndur, en hvert er vandamál Kára? Vandamálið ef hann Kári ætlar að svara öllu, þarf hann að útskýra tölfræðina um rafbílabyggingar á tuttugu sekúndum, leiðrétta vitleysuna um fuglastofninn á tuttu sekúndum, og utskýra hvað gerðist í Þýskalandi 2017, á tuttugu sekúndum... og þá er tíminn hans búinn! Hann náði ekki einu sinni að koma að sínum eigin rökum eða svara hinum 4 punktunum. Kári mun því líklega svara ruglaður og stressaður: “Bíddu, varðandi Þýskaland, það var ekki vegna orkuskipta heldur út af gaskreppunni! Og varðandi rafbílana, tölfræðin sýnir að þeir brenna sjaldnar en bensínbílar... og varðandi Evrópusambandið... æji, tíminn minn er víst búinn” Gunnar (brosir og grípur fram í) “Sjáðu, þú svaraði hvorki fullyrðingunum um Kína, fuglana né lagalegu hliðina! Þú ert auðvitað ekki með nein svör við þessu”

Er þetta kannski bara tæknin sem er notuð markvisst til að vinna kosningar í dag?


r/Iceland 9h ago

Ég samdi nokkrar "Rómverskur riddari" vísur með öðrum bókstöfum

24 Upvotes

Spunastuttur sjóræningi sást sparka í skríkjandi skúm á skúlagötu, skjóta súpuskálar á skólavörðustíg og sprengja skátaskála á Seyðisfirði

Ískaldur Íri ítrekaði ítarlega að ígulker Ísafjarðar ígrunda íþyngingu ísbjarna Íslands

Vingjarnlegur Væringi varð veikur í vikunni, volæði og vos vegna vanvirkra vattaðra vettlinga

Pólskur pallberi plataði páfann á páskadag með prentuðum pottablómum og prjónuðum plaggötum

Örlítið örverpi önglaði og ögraði öllum öflugu öskrandi öldungum Öxafjarðar og örugglega öðrum öndum

Ýgin Ýsa ýkti ýmiskonar ýlfur ýfða Ýmis frá Ýrheiði

Netta nornin frá Nígeríu náðaði níu nötrandi Nesfirsk nagdýr með nútíma næstlu

Kirkjubæjarklaustursklerkurinn kom keyrandi á klunnalegri kerru með kaffi og kartöflur handa kórnum

Hrausti handlagni Hafnfirðingurinn henti heillri hurð handan hellisheiðarhjalla og hrópaði hávær hljóð með hörku

Æðrulaus ælandi æðakolla ætlaði ærlega að æfa ævarfornar ærumeiðingar

Marmaramálari frá Marmaris mat mánudagsmarkmiðið mikilvægara en miðvikudags mistökin


r/Iceland 1h ago

Ætli að leggja á­herslu á bókun 35

Thumbnail
visir.is
Upvotes

r/Iceland 12h ago

Sögusagnir úr Hruninu 2008

21 Upvotes

Hæ hæ! Ég er að safna munnlegum heimildum frá tíma Hrunsins 2008 fyrir rannsóknarverkefni. Ég er að leita að frásögnum og tilgátum um atburðarásina sem ekki komu fram í Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008. Í raun er ég að safna slúðursögum um athæfi útrásarvíkinganna og bankamannanna.

Þetta er kannski langsótt, en ef eitthvert ykkar man eftir því að hafa heyrt hitt og þetta í fjölskyldumatarboðum á þessum tíma þá væri ég svo til í að fá að heyra frá því, ef eitthvert ykkar væri til í að deila.

Sem dæmi um slúðursögu sem ég heyrði sem barn var að bankamennirnir hefðu í raun ekki farið í fangelsi, heldur að þeir hefðu allir farið saman í sumarbústað að grilla í nokkra mánuði og svo fengið að fara aftur í vinnuna.


r/Iceland 7h ago

What song could this be?

5 Upvotes

I went to a public pool in Rekyjavic our last day in Iceland, specifically Laugardalslaug. There was a water aerobics class next to us, and when they were done, everyone held hands and sang a song in a big circle.

Does anyone know what song this could be? It was such a sweet moment to witness.


r/Iceland 22h ago

ESB Við lifum við lýðræði og þjóðin fékk að kjósa, sama hver þín persónulega skoðun er þá er það mjög fallegt að við fengum að kjósa, og það var risa stórt hlutfall landsmanna sem nýttu kosningarrétt sinn

78 Upvotes

Þetta er ekki þráður til að þræta hvort já eða nei var svarið. Slökum aðeins á og verum þakklát fyrir að fá að kjósa sem þjóð um málefni eins og þessi


r/Iceland 7h ago

Auðkennis App Reynsla

4 Upvotes

Ætlaði að fá að pumpa reynslu fólks. Ég er búinn að vera dröslast með gamla SIM kortið mitt frá íslandi þó ég hafi búið erlendis í 3 ár vegna þess að auðkennið mitt er á því.

Vissi af því að það væri líka app sem ég gæti notað en þegar ég skoðaði þetta á sínum tíma að þá buðu ekki allar þjónustur upp á þann möguleika að nota það. Þannig að ég þurfti að halda uppi SIM kortinu.

Hvernig er þetta þessa daganna? Er allt sem skiptir máli farið að supporta appið?


r/Iceland 9h ago

Beer Day 1989 - by Greenlandic news paper Atuagagdliutit

6 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Hvaða aðferðir boða nei-sinnar til að „laga þetta sjálf“?

59 Upvotes

Þetta hefur verið mantra nei-hreyfingarinnar, þannig ég spyr, hvernig ætlið þið að laga ástandið? Við höfum haft ríkisstjórnir þvert á hinu pólitíska rófi og ekkert gengur. Hvað á að gera sem ekki hefur verið reynt áður?
Ég er að spyrja í einlægni því ég vil trúa að við höfum ekki tapað seinasta hálmstráinu, en tbh sé ég ekkert nema svartnætti framundan.


r/Iceland 1d ago

Stjórnarráðið | Samræmdar reglur um blóðgjöf óháð kyni eða kynhneigð frá 1. september

Thumbnail
stjornarradid.is
60 Upvotes

r/Iceland 1d ago

ESB Island sa nei til EU. Hvorfor det? – NRK Urix

Thumbnail
nrk.no
91 Upvotes

Glöggt er gests augað

„Úr norski pressunni: ,,Det er krefter på Island som har ønsket å stå utenfor EU for å bevare sin egen makt. Det er høyreorienterte og privilegerte kretser. De har lyktes med å overtale mindre privilegerte til å stemme nei, mener han." Professor Rasmus Gjedssø Bertelsen ved UiT, Norges arktiske universitet i Tromsø"

Á íslensku
Á Íslandi eru öfl sem hafa viljað standa utan ESB til að varðveita eigið vald. Það eru hægrisinnuð og forréttindahópar. Þeim hefur tekist að sannfæra hina verr settu um að kjósa nei,“ telur Rasmus Gjedssø Bertelsen, prófessor við UiT, Norðurskauts-háskóla Noregs í Tromsø."

á ensku


r/Iceland 1d ago

Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
49 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar: „Þannig að ég sé fullt af tækifærum með öflugu starfsfólki sem er núna starfandi á Vísi og á Bylgjunni, og svo líka með hagnýtingu gervigreindar - það eru fullt af tækifærum þar sem við sjáum.“ - Kvöldfréttir Sýnar í opinni dagskrá, 31. ágúst 2026

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

16 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Hvað eru Redditorar með útborgað?

31 Upvotes

Daginn daginn.

Mig langar að gera óformlega könnun um hvað fólk er almennt með útborgað.

Hvaða menntun býr þá að baki og hvað fólk vinnur marga tíma fyrir launin.

Og til blaðamanna DV - efni hér er ekki til birtingar á ykkar miðlum.


r/Iceland 23h ago

Hvernig borðið þið pylsur?

5 Upvotes

Borðið þið hana

A) gúlpið hana alla í einu
B) einn bita í einu
C) pylsuna á undan brauðið


r/Iceland 1d ago

Kvótinn kominn að mestu leiti í hendur fjögurra aðila

Thumbnail frettatiminn.is
46 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Forvitnileg að sjá eftirköstin

Thumbnail
visir.is
56 Upvotes

Ég hef smá tilfinningu fyrir því að hér sé stærsti "tapari" kosninganna. Hún stóð sig alveg ágætlega í umræðunni og ég virði að hún stóð með sinni sannfæringu.

En miðað við skoðanakannanir þá tók hún sér stöðu gegn öllu helstu "pólitíska baklandi" sínu og ég held að trúverðugleiki hennar gagnvart þeim sé brostinn. Ekki hjálpaði þegar hún mætti í sjónvarp og tók sér stöðu við hlið Halldórs B.

Hvað haldið þið?


r/Iceland 1d ago

ESB 18-29 ára kjósendur - Hvað gerðist eiginlega?

42 Upvotes

"Í júní sögðust 37% fólks á aldrinum 18–29 ára líkleg til að kjósa nei og 63% sögðust líkleg til að kjósa já í Þjóðarpúlsi Gallup. Nú í lok ágúst sögðust 60% aftur á móti hallast að nei og 40% að já.

Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur segir fólk öllu jafna verða fastara í sínum viðhorfum til stjórnmála með aldrinum. Ungt fólk sé aftur á móti oft enn að móta afstöðu sína og því beinist kosningaherferðir oft meira að því.

„Þetta bendir auðvitað til þess að eitthvað hafi tekist hjá nei-hreyfingunni í þeim efnum á síðustu metrunum.“

Hvað gerðist þarna? Var einhver rosaleg herferð á samfélagsmiðlum síðustu vikur fyrir kosningar?

Þetta virkar smá á mig eins og einhverjir áhrifavaldar hafi verið fengnir til að dæla út áróðri, ásamt einhverju misinformation dóti (sæstrengur sem mun stela öllu rafmagni af okkur osfrv.) til yngri kjósenda.

Væri gaman að fá að vita hvað eða hverjir ollu þessum straumhvörfum


r/Iceland 1d ago

Sýn hættir með sjónvarpsfréttir

Thumbnail
ruv.is
30 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Dear iceland, this is why i believe joining Switzerland 🇨🇭 would be the perfect solution for you guys!

169 Upvotes

Somehow it didn't find a lot of support on the swiss reddit so i am trying my luck here. In light of recent news i want to convince you on why this is the perfect fit.

  1. We already call Iceland Ísland

  2. We both have beautiful nature with lots of glaciers and waterfalls

  3. Iceland has problems with the currency and we could offer a good solution

  4. You wouldn’t need to worry about your fishermen, since we hardly have any commercial fishermen left.

  5. At a time when Iceland can no longer rely on NATO, 'the best army in the world' could step in

  6. Switzerland would gain access to ports that are not dependent on the water level of the rhine river, strengthening your ports

  7. We are a federalistic country, where the cantons still hold most of the power.

  8. We both have a good energy infrastructure based on renewables

  9. Both have a red and white cross on their flag

  10. Whether we have 4 or 5 national languages doesn’t really matter!

If you have any other good reasons on why this is the perfect fit, put them in the comments.


r/Iceland 1d ago

ESB Árið er 1993 og þjóðin er að fara kjósa um EES-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu...

46 Upvotes

Hef verið að skoða þetta aðeins og sé ekki betur en að stór hluti þjóðarinnar vildi að þetta færi í þjóðaratkvæði, en Davíð Oddson og co hlustuðu auðvitað ekkert á það og tróðu þessu í gegn.

Skoðanakannanir á þessum tíma sýnir að EES-samningurinn var afskaplega óvinsæll, og væri meiriháttar líkur að hann hefði ekki verið samþykktur af þjóðinni.

Hvernig liti Ísland út í dag án þessara samnings? (sem margir vilja meina að sé mjög mikilvægur)

Smá svona alternative timeline dæmi.


r/Iceland 2d ago

Bann við því að stór fyrirtæki eigi viðskipti í evrum

203 Upvotes

Þar sem þessi stóru íslensku fyrirtæki hafa eytt svo miklum peningum í að halda okkur utan ESB og halda í íslensku krónuna, ættum við þá ekki núna að greiða atkvæði um að tryggja að allir verði að gera það, ekki bara þeir fátæku? Setja ný lög um að stjórnmálaflokkar verði að sýna hvaðan peningar þeirra koma og lög sem koma í veg fyrir að risastór íslensk fyrirtæki noti evru sem sjálfgefinn gjaldmiðil