r/Iceland 13h ago

Að vinna rök­ræður án rök­semda, Þekkir þú Gish gallop tæknina?

Thumbnail
visir.is
66 Upvotes

Ég rak augun í þessa grein í gærkvöldi. Alveg mjög áhugaverð grein og eitthvað sem ég hafði aldrei pælt í sjálfur áður. Ég sé ekki betur en að þetta sé tækni sem Sigmundur Davíð, Trump, Snorri Másson, Guðlaugur Þór, Þórarinn Hjartarson og fleiri nota markvisst. Ég fór að horfa á nokkur YouTube myndbönd um hvernig þessi tækni virkar, mæli með! Rakst svo á fleiri aðferðir sem tilheyra sömu regnhlífarhugtökunum, flood the zone with shit og firehose of falsehood sem eru meira notaðar á samfélagsmiðlum og netheimum. En ef ég skil þetta rétt er Gish gallop notað í rökræðum, kappræðum, hlaðvörðum og viðtölum. osfv

Tilvitnun úr greininni:
Annað dæmi, tökum bara klassískt dæmi um hvernig þetta birtist í kappræðum stjórnmálamanna í sjónvarpinu. Segjum að umræðuefnið séu umhverfismál og orkuskipti.
Spyrillinn gefur hvorum viðmælanda um sig 60 sekúndur til að svara(þetta eru uppskáldaðir karakterar).

Kári, rökræðumaður sem vill ræða málin á yfirvegaðan hátt. Gunnar er rökræðumaður sem beitir Gish gallop tækninni.

Spyrillinn spyr. “Gunnar, af hverju ert þú á móti nýju orkustefnunni?“

Gunnar (Gish gallop tækninni beitt af fullum krafti , 60 sekúndur),

“Heyrðu, það er alveg augljóst! Fyrst og fremst kosta þessar rafhlöður meira en allt fjárlagagatið, allir vita að rafbílar brenna fjórum sinnum hraðar upp og slökkviliðið getur ekki slökkt í þeim, vindmyllurnar eru að drepa allan fuglastofninn á vestfjörðum, og svo voru þessar sömu hugmyndir prófaðar í Þýskalandi 2017 og framleiðslan hrapaði um 40%! Auk þess eru þetta allt saman tilskipanir frá Evrópusambandinu sem við skrifuðum undir ólöglega árið 2019, vísindamenn í Svíþjóð voru að sýna fram á að stálframleiðslan geti aldrei orðið græn, og á meðan er Kína að byggja tvö kolaverk á viku!

Hvað gerðist rétt í þessu? það sem gerðist er að Gunnar henti út svona sirka 7 ólíkum fullyrðingum, sumum hálfsannleik, sumum rangfærslum og sumum óviðkomandi staðreyndum, á aðeins 45 sekúndum.

Næst fær Kári orðið, 60 sekúndur, en hvert er vandamál Kára? Vandamálið ef hann Kári ætlar að svara öllu, þarf hann að útskýra tölfræðina um rafbílabyggingar á tuttugu sekúndum, leiðrétta vitleysuna um fuglastofninn á tuttu sekúndum, og utskýra hvað gerðist í Þýskalandi 2017, á tuttugu sekúndum... og þá er tíminn hans búinn! Hann náði ekki einu sinni að koma að sínum eigin rökum eða svara hinum 4 punktunum. Kári mun því líklega svara ruglaður og stressaður: “Bíddu, varðandi Þýskaland, það var ekki vegna orkuskipta heldur út af gaskreppunni! Og varðandi rafbílana, tölfræðin sýnir að þeir brenna sjaldnar en bensínbílar... og varðandi Evrópusambandið... æji, tíminn minn er víst búinn” Gunnar (brosir og grípur fram í) “Sjáðu, þú svaraði hvorki fullyrðingunum um Kína, fuglana né lagalegu hliðina! Þú ert auðvitað ekki með nein svör við þessu”

Er þetta kannski bara tæknin sem er notuð markvisst til að vinna kosningar í dag?


r/Iceland 3h ago

Þessi maður var andlit Áfram Ísland

Post image
47 Upvotes

Ólafur Ragnar hefur svosem aldrei farið leynt með hvar hann stendur, en þessi póstur er aðeins of !


r/Iceland 6h ago

Er ekki kolólöglegt að hafa ekki einn, heldur tvo síma fyrir framan sig að lesa twitch chat meðan þú keyrir hringinn á móturhjóli? Hvaða leiðsögufyrirtæki er að leyfa þeim þetta?

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

47 Upvotes

r/Iceland 12h ago

Ég samdi nokkrar "Rómverskur riddari" vísur með öðrum bókstöfum

25 Upvotes

Spunastuttur sjóræningi sást sparka í skríkjandi skúm á skúlagötu, skjóta súpuskálar á skólavörðustíg og sprengja skátaskála á Seyðisfirði

Ískaldur Íri ítrekaði ítarlega að ígulker Ísafjarðar ígrunda íþyngingu ísbjarna Íslands

Vingjarnlegur Væringi varð veikur í vikunni, volæði og vos vegna vanvirkra vattaðra vettlinga

Pólskur pallberi plataði páfann á páskadag með prentuðum pottablómum og prjónuðum plaggötum

Örlítið örverpi önglaði og ögraði öllum öflugu öskrandi öldungum Öxafjarðar og örugglega öðrum öndum

Ýgin Ýsa ýkti ýmiskonar ýlfur ýfða Ýmis frá Ýrheiði

Netta nornin frá Nígeríu náðaði níu nötrandi Nesfirsk nagdýr með nútíma næstlu

Kirkjubæjarklaustursklerkurinn kom keyrandi á klunnalegri kerru með kaffi og kartöflur handa kórnum

Hrausti handlagni Hafnfirðingurinn henti heillri hurð handan hellisheiðarhjalla og hrópaði hávær hljóð með hörku

Æðrulaus ælandi æðakolla ætlaði ærlega að æfa ævarfornar ærumeiðingar

Marmaramálari frá Marmaris mat mánudagsmarkmiðið mikilvægara en miðvikudags mistökin


r/Iceland 14h ago

Sögusagnir úr Hruninu 2008

23 Upvotes

Hæ hæ! Ég er að safna munnlegum heimildum frá tíma Hrunsins 2008 fyrir rannsóknarverkefni. Ég er að leita að frásögnum og tilgátum um atburðarásina sem ekki komu fram í Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008. Í raun er ég að safna slúðursögum um athæfi útrásarvíkinganna og bankamannanna.

Þetta er kannski langsótt, en ef eitthvert ykkar man eftir því að hafa heyrt hitt og þetta í fjölskyldumatarboðum á þessum tíma þá væri ég svo til í að fá að heyra frá því, ef eitthvert ykkar væri til í að deila.

Sem dæmi um slúðursögu sem ég heyrði sem barn var að bankamennirnir hefðu í raun ekki farið í fangelsi, heldur að þeir hefðu allir farið saman í sumarbústað að grilla í nokkra mánuði og svo fengið að fara aftur í vinnuna.


r/Iceland 3h ago

Ætli að leggja á­herslu á bókun 35

Thumbnail
visir.is
14 Upvotes

r/Iceland 12h ago

Beer Day 1989 - by Greenlandic news paper Atuagagdliutit

7 Upvotes

r/Iceland 9h ago

What song could this be?

6 Upvotes

I went to a public pool in Rekyjavic our last day in Iceland, specifically Laugardalslaug. There was a water aerobics class next to us, and when they were done, everyone held hands and sang a song in a big circle.

Does anyone know what song this could be? It was such a sweet moment to witness.


r/Iceland 10h ago

Auðkennis App Reynsla

4 Upvotes

Ætlaði að fá að pumpa reynslu fólks. Ég er búinn að vera dröslast með gamla SIM kortið mitt frá íslandi þó ég hafi búið erlendis í 3 ár vegna þess að auðkennið mitt er á því.

Vissi af því að það væri líka app sem ég gæti notað en þegar ég skoðaði þetta á sínum tíma að þá buðu ekki allar þjónustur upp á þann möguleika að nota það. Þannig að ég þurfti að halda uppi SIM kortinu.

Hvernig er þetta þessa daganna? Er allt sem skiptir máli farið að supporta appið?